Lífið

"Þetta voru mín stærstu mistök“

MYND/AP
Rapparinn umdeildi Chris Brown segir að það hafi verið stærstu mistök lífs síns að leggja hendur á unnustu sína Rihönnu. Eins og frægt er orðið lamdi Brown söngkonuna til óbóta árið 2009.

Brown, sem hlaut skilorðsbundin dóm fyrir líkamsárásina, og Rihanna eru nú tekin saman á ný. Rapparinn segist vera breyttur maður.

„Stundum rífst maður við manneskjuna sem maður elskar," sagði Brown í samtali við fréttamiðillinn The Mirror. „Og ég sé gríðarlega eftir þessu kvöld, þetta voru mín stærstu mistök. En hún elskar mig enn. Hvað get ég sagt? Mér var fyrirgefið."

Þá segir Brown að stuðningur aðdáenda sinna hafi reynst dýrmætur á þessum tíma enda hafi hann átt afar erfitt með að fóta sig á heimssviðinu.

„Ég einfaldlega skildi ekki þennan heim," segir Brown. „Stuðningur þeirra sem þekktu mig var ómetanlegur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.