Farðar fræga fólkið í London Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 28. febrúar 2013 09:30
Margrét Magnúsdóttir fluttist til London í ágúst 2011 og hóf förðunarnám við Delamar Academy. Námið átti svo sannarlega eftir að vinda upp á sig og rúmum tveimur árum síðar hefur Margrét starfað við að farða stórstjörnur fyrir kvikmyndir, tónlistarmyndbönd og sjónarpsþætti. Margrét segir förðunaráhugann hafa kviknað þegar hún var í Versló, en þar starfaði hún við hinar ýmsu leiksýningar og myndatökur. Í kjölfarið fór hún að vinna einstök verkefni með ljósmyndurum og ekki leið á löngu þar til hún vissi fyrir víst að þetta væri sá bransi sem hana langaði til að starfa innan. Hún sótti um í Delamar Academy í London þar sem hún segist hafa fengið frábæra menntun í faginu. Boltin byrjaði svo að rúlla fljótlega eftir það.Úr myndbandi rapparans Will.I.Am sem Margrét farðaði fyrir.Hver eru þín stærstu verkefni hingað til? „Ég er búin að vera mjög heppin og fá frábær tækifæri út frá skólanum. Um viku eftir útskrift fékk ég símtal og þá hafði einn kennarinn mælt með mér í starfsreynslustöðu fyrir kvikmyndina Great Expectations. Ég fékk svo annað flott tækifæri að farða fyrir tónlistarmyndbands rapparans Will.I.Am - This is Love, og var það var ótrúlega skemmtileg reynsla. Svo hef ég verið að vinna við önnur verkefni eins og Asian Music Awards, tökur fyrir þætti eins og matreiðsluþátt og minni grínþætti, ásamt því að farða í ljósmyndastúdíóum."Förðun eftir Margréti.Hvernig reynsla er það að starfa á svona flottu setti með heimsfrægu fólki? „Það er ótrúlega gaman. Að koma inn á sett í Great Expectations var eins og að koma inn í annan heim. Þetta var líka svo stuttu eftir útskrift hjá mér og mér var alveg hent út í djúpu laugina. Ég hafði aldrei séð neitt þessu líkt áður, hvað þá hitt stórstjörnur á borð við Ralph Fiennes og Jeremy Irvine.Margrét Magnúsdóttir.Eru einhver spennandi verkefni á döfinni hjá þér? „Ég er að koma heim til Íslands yfir páskana í frí og afslöppun. Svo þegar ég fer aftur út er planið að halda áfram að farða í stúdíóunum þar sem ég er að vinna mikið núna og halda áfram að bæta portfólíóið mitt. Svo koma vonandi fleiri spennandi tækifæri með vorinu."Að störfum.
Mest lesið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Menning Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Fleiri fréttir Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Sjá meira