Lífið

23ja ára aldursmunur

Söngvarinn Marc Anthony hætti með kærustu sinni, fyrirsætunni Shannon De Lima, fyrir aðeins mánuði síðan en er strax kominn með nýja. Sú heppna er Topshop-erfinginn Chloe Green.

Ástin spyr greinilega ekki um aldur því Marc er 44ra ára en Chloe 21 árs. Chloe er því aðeins tveimur árum yngri en elsta dóttir Marcs, Ariana.

Töff með tvíbura.
Chloe og Marc hafa til dæmis sést saman í Disneylandi með börnum Marcs, tvíburunum Max og Emme, sem hann á með söngkonunni Jennifer Lopez. Marc og Jennifer skildu árið 2011 eftir sjö ára hjónaband.

Innileg.
Chloe var fyrir stuttu sögð vera í tygjum við franska fótboltamanninn Djibril Cisse en hélt því fram að þau væru bara vinir.

Marc og Jennifer Lopez.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.