Lífið

Aðalatriðið er að gefast aldrei upp

Ellý Ármanns skrifar
"Ég heiti Sigurður Steinþórsson og langar að segja frá minni sögu. Núna hef ég verið að glíma við þunglyndi í um það bil tvö ár. Ég hef verið í sjálfsvígshugsunum í langan tíma..." þannig hefst einlægur pistill sem Lífið fékk sendan í gærkvöldi frá hugrökkum 26 ára manni Sigurði Steinþórssyni sem býr á Húsavík. Þar segir hann frá líðan sinni og baráttu hans við þunglyndi.

Pistill Sigurðar vakti umsvifalaust athygli lesenda og viðbrögðin létu ekki á sér standa.

Tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson lét sitt ekki eftir liggja með því að hvetja Sigurð áfram eins og svo margir aðrir með eftirfarandi athugasemd sem við birtum hér í heild sinni:

Komdu sæll Sigurður minn.

Ég hætti að drekka áfengi fyrir 34 árum síðan (Lenti í kraftaverki)

Eftir að ég hætti fór ég að finna fyrir miklu þunglyndi og var farinn að hugsa um sjálfsvíg. En hringdi í Rúnar Júlíusson heitinn Rokkara og vin minn og trúði honum fyrir þessu en sagði honum

Að ég vissi ekki af hverju ég væri svona. Mig langaði alltaf að öskra á morgnana bara af því ég væri

Vaknaður.

Rúnar sagði mér að hann þekkti mann sem væri svona, og kallaði Rúnar þetta dulkvíða.

Hann benti mér á að fara til læknis og gerði ég það.

Læknirinn lét mig fá lyf og sagði mér að þau byrjuðu ekki að virka fyr en eftir 3 vikur,og hefði mér fundist betra ef hann hefði slept því þvi 3 vikur eru lengi að líða fyrir þunglyndan mann.

Nú eru komin mikið betri lyf á markaðinn og á að vera hægt að halda niðri sjúkdómnum og lækna hann jafnvel. Ég skil þig vel Sigurður minn þú ert sterkur að tala um þetta.

Nú hef ég verið léttlyndur í mörg ár og hef gaman að lífinu.

Ég vona að þú læknist Sigurður minn þú ert ungur og átt allt lífið framundan.

Aðalatriðið er að gefast aldrei upp.

Baráttukveðjur!

Gylfi Ægisson











Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.