Lífið

Mamma komin aftur á stjá

Söngkonan Shakira ljómaði er hún sást yfirgefa heimili sitt í Barcelona í vikunni til að fara á fund. Aðeins þrjár vikur eru síðan hún eignaðist soninn Milan með sínum heittelskaða, fótboltamanninum Gerard Piqué.

Ólíkt nýbökuðum mæðrum almennt virtist Shakira vera vel útsofin og því líklegt að Milan litli sé afar vær og góður.

Sæta par.
Þó lítill sé er Milan búinn að fara á sinn fyrsta fótboltaleik. Hann fór með móður sinni að horfa á pabba leika með Barcelona um daginn og setti Shakira mynd af því á Instagram.

Milan á fyrsta fótboltaleiknum.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.