Missti 39 kg Ellý Ármanns skrifar 5. febrúar 2013 16:00 Rakel er nemi á fyrsta ári í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands "
Ég hef frá barnsaldri glímt við aukakílóin, orkuleysi, þreytu og pirring og hef reynt margt í gegnum tíðina en án árangurs. Ég var þó dugleg að mæta í ræktina og hamaðist mikið þar en ég skildi hins vegar ekki af hverju vigtin fór bara upp," segir Rakel Erna Skarphéðinsdóttir, 21 árs, sem hefur misst hvorki meira né minna en 39 kíló.Munurinn er griðarlegur eins og sjá má á breytingunni sem orðið hefur á Rakel.Sjálfstraustið horfið "Það var svo sumarið 2011 sem að ég sá mynd af mér og fékk sjokk þar sem ég þekkti mig ekki á umræddri mynd. Ég sá mig ekki í þessari þreyttu og þrútnu stelpu. Ég var í sumarfríi í útlöndum og var rosalega sár þegar að ég áttaði mig á ástandinu sem ég var komin í." "Mér leið ekki vel á þessu tímabili, hvorki andlega né líkamlega. Höfuð- og magaverkir voru daglegt brauð ásamt ýmsu öðru. Sjálfstraustið var orðið svo lágt að ég gat ekki einu sinni hugsað mér að fara í sturtu með öðrum konum eftir ræktina. En það var þarna sem ég ákvað að taka taumana í mínar hendur. Ég vildi ekki vera þessi tvítuga stelpa sem strögglaði með þriggja-stafa-töluna sama hvað ég gerði."Atvinnulaus en bjartsýn "Í júlí 2011, var ég atvinnulaus og ákvað að vinna í sjálfri mér. Það var engin afsökun lengur. Þá hitti ég Herbalife lífsstílsleiðbeinanda, sem að ég fór til vikulega í eftirfylgni. Svoleiðis lærði ég hægt og rólega að tileinka mér heilbrigðan lífsstíl sem saman stóð af Herbalife í bland við vel samsettar máltíðir." "Í júlí 2011, var ég atvinnulaus og ákvað að vinna í sjálfri mér. Það var engin afsökun lengur. Þá hitti ég Herbalife lífsstílsleiðbeinanda, sem að ég fór til vikulega í eftirfylgni. Svoleiðis lærði ég hægt og rólega að tileinka mér heilbrigðan lífsstíl sem saman stóð af Herbalife í bland við vel samsettar máltíðir," segir Rakel.Munurinn er mikill eins og sjá má.Gekk margfalt betur en hún þorði að vona "Fyrstu vikurnar gengu margfalt betur en ég þorði að vona. Kílóin bókstaflega láku af mér og ég sá að ég gat þetta. Það munar miklu að vera með sett markmið, öflugt stuðningsnet og í jákvæðu umhverfi. Þá verður allt mikið auðveldara og auðveldara að standast freistingar sem verða á vegi manns."Hugarfarið skiptir máli "Það skiptir mig miklu máli að vera jákvæð gagnvart breytingunum sem ég var að gera, ég bannaði mér ekki hluti, en ég tók ákvarðanir um hvað ég skyldi gera og hvernig. Ég þurfti líka að vinna mikið með hugann. Ég átti það til að berja mig niður svo að ég tamdi mér að líta frekar á björtu hiðarnar og minna mig á hversu langt ég var komin."Líður vel núna "Síðan ég byrjaði á lífsstílsbreytingunni. Ég er búin að losa mig við 39 kíló, yfir 140 sentimetra af ummáli og búin að lækka um 20 fituprósentustig," segir hún glöð. "Ég get varla lýst því hversu mikið betur mér líður núna. Þetta eru mjög stór tímamót í mínu lífi og það er varla hægt að bera saman mig eins og ég er í dag og hvernig ég var áður fyrr því breytingin er svo mikil. Stundum þarf ég að hrista hausinn og hugsa virkilega um árangurinn sem ég hef náð og nota oft smjörlíkissamanburð það er í kílóum. Þetta eru næstum því 80 smjörlíkisstykki í kílóum. Ég veit ekki hvort ég myndi geta labbað upp stiga með það í bakpoka."Hætt að leggja sig eftir skóla "Á þessum tíma hef ég samt sem áður áttað mig á því að svona lífsstílsbreyting er ekki bara spurning um kílóamissi heldur heilbrigði og lífsgæði. Í dag þarf ég ekki að berjast við eilíft orkuleysi og að leggja mig eftir skóla. Ég get eiginlega sagt að það hafi nokkrar klukkustundir bæst við sólahringinn hjá mér. Svo er sjálfstraustið og sjálfsálitið allt annað." "Á hverjum degi legg ég mig fram við að viðhalda þessum árangri. Ég er komin með ný og öðruvísi markmið sem snúa til dæmis að íþróttaárangri og skipulagningu."
Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Fleiri fréttir Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Sjá meira