Innlent

"Geðveik leið til þess að fá okkur til að fræðast um þetta"

Kolbeinn Tumi Daðason í Háteigsskóla skrifar
Frá vinstri: Ingibjörg, Selma og Erna.
Frá vinstri: Ingibjörg, Selma og Erna. Mynd/Stefán
„Það er svo oft bara talað um það vandræðalega sem getur gerst fyrir stelpur. En þetta getur líka verið vandræðalegt fyrir stráka og þeir geta alveg eins verið óöruggir eins og stelpur," segir Selma Dögg Björgvinsdóttir í 10. bekk Háteigsskóla.

Nemendur í 10. bekk um allt land horfðu á stuttmyndina „Fáðu já!" í hádeginu í dag. Í Háteigsskóla komu stelpurnar úr tveimur 10. bekkjum skólans saman í einni stofu til að horfa á myndina. Strákarnir horfðu á myndina í annarri stofu.

„Þetta er svona mynd sem er búið að bíða eftir að verði sýnd í skólum. Það vita allir hvernig þetta er. Það er svo oft vandræðalegt að tala um þetta. Það er líka svo rétt að þetta snýst ekki bara um að segja nei. Þú þart líka að fá já," segir Selma Dögg ein þriggja stelpna úr 10. bekk sem blaðamaður ræddi við að sýningu myndarinnar lokinni. Auk þess var rætt við tvo drengi, þá Andra Sigurð og Guðmund Ágúst, en viðtalið við þá má sjá neðst í fréttinni.

Myndin var innan marka
Selma DöggMynd/Stefán
Erla og Ingibjörg, jafnaldrar Selmu Daggar, taka undir með vinkonu sinni.

„Það er gott að það er verið að taka þetta upp í skólum. Það er vandræðalegt að tala um þetta og því verið að gera unglingum léttara að tala um þetta við alla. Þetta á að vera opið mál," segir Ingibjörg og Erna bætir við að myndin hefði verið mjög góð og fræðandi.

„Mér fannst myndin mjög góð og hún svaraði mörgum spurningum sem maður þorir kannski ekki að spyrja. Það var margt fræðandi í henni," segir Erna.

Stelpurnar eru sammála því að þeim hafi ekki fundist óþægilegt að horfa á myndina með bekkjarfélögum sínum og kennurum.

„Nei, alls ekki. Mér fannst það bara þægilegt. Hún var innan marka en sýndi á sama tíma hvernig þetta er án þess að það væri óþægilegt," segir Erna og Ingibjörg tekur undir með henni.

„Nauðgunarhlutinn var svolítið grófur en samt innan marka svo maður gat horft á það. Þetta sýndi raunveruleikann betur en hefur verið gert áður," segir Ingibjörg.

"Mér fannst óþarfi að skipta okkur upp"
IngibjörgMynd/Stefán
Kennarar í Háteigsskóla ákváðu að strákarnir og stelpurnar skyldu ekki horfa saman á myndina. Erla Súsanna Þórisdóttir, annar umsjónarkennari 10. bekkjar, sagði að það væri þeirra reynsla að nemendurnir væru líklegri til þess að tjá sig í kynjaskiptum hópum.

„Það gerði þetta kannski minna vandræðalegt. Þótt við værum ekki að tala neitt. Það er auðvitað alltaf vandræðalegt að vera saman og tala um þetta," segir Selma Dögg. Ingibjörg telur þó að strákarnir og stelpurnar hefðu átt að horfa saman á myndina.

„Þetta á líka að vera eitthvað sem strákar og stelpur geta talað saman um. Þannig að mér finnst óþarfi að skipta okkur upp. Þetta snýst líka um samskipti kynjanna," segir Ingibjörg.

Fá toppeinkunn frá stelpunum
ErnaMynd/Stefán
Erna telur að það væri fróðlegt fyrir foreldra barna og unglinga að horfa á myndina. „Þú byrjar ekkert allt í einu að tala um þetta við foreldra þína. Mér finnst að foreldrar ættu að horfa á þetta til þess að tala við börnin sín," segir Erna sem telur myndina hafa náð markmiðum sínum.

„Hún er geðveikt góð leið til þess að fá okkur til þess að fræðast um þetta. Þetta er svo vandræðalegt og góð leið til að fá okkur til þess að tala um þetta," segir Erna.

Aðspurð um innihald myndarinnar segir Selma gott að bæði strákur og stelpa hafi verið látin tala um vandræðalega hluti sem geta komið upp í kynlífi.

„Það er svo oft bara talað um það vandræðalega sem getur gerst fyrir stelpur. En þetta getur líka verið vandræðalegt fyrir stráka og þeir geta alveg eins verið óöruggir eins og stelpur," segir Selma Dögg. Hún var sammála stöllum sínum þegar þær voru beðnar um að bregða sér í búning kvikmyndagagnrýnanda og gefa myndinni einkunn, allt að fimm stjörnur.

„Fjórar og hálf stjarna," var einkunn sem stelpurnar komu sér saman um.

Allir hefðu gott af því að horfa
Guðmundur Ágúst og Andri Sigurður.Mynd/Stefán
„Mér fannst hún gerð á skemmtilegan hátt, ekki bara notað heimildarefni heldur líka eitthvað sem höfðar til okkar," segir Andri Sigurður í 10. bekk í Háteigsskóla. Andri Sigurður og Guðmundur Ágúst ræddu við blaðamann að sýningu myndarinnar lokinni og voru hæstánægðir með myndina.

Þeim félögum fannst myndin alls ekki of gróf.

„Mér finnst þetta ekki of gróft. Ég hef séð grófari heimildarmyndir um nauðganir og eitthvað þannig," segir Guðmundur sem fannst alls ekki óþægilegt að horfa á myndina með félögum sínum.

„Nei, engan veginn. Þegar maður er heima að horfa á bíómyndir þá poppar eitthvað svona upp. Þannig að maður er vanur þessu," segir Guðmundur sem fannst myndin mjög góð að frátöldum nokkrum senum.

„Mér fannst ein eða tvær senur frekar ýktar t.d. í ofbeldishlutanum. Ég skil alveg hvert verið er að fara með þetta en samt dálítið ýkt."

Aðspurður hvort hann telji foreldra hafa gott af því að horfa á myndina segir Andri að allir ættu að horfa á hana.

„Það er voðalega lítið af svona myndum framleiddar. Ég held að það væri fínt fyrir alla að sjá þetta. Bæði til áminningar og einnig fyrir þá sem þekkja ekki til."

Lærðu ekkert nýtt af myndinni
Mynd/Stefán


Andri segist hafa fengið veður af myndinni frá móður sinni fyrir þó nokkru síðan. Hann hafi hlakkað til að sjá hana. Þeir félagar telja sig þó ekki hafa lært neitt nýtt af myndinni.

„Allavega ekki ég. Ég hef kynnt mér mikið af þessu og veit að Gústi (Guðmundur Ágúst) hefur gert það líka. Þetta er því kannski ekkert nýtt fyrir okkur en fyrir suma sem þekkja þetta ekki er mikilvægt að fá svona upplýsingar," segir Andri. Varðandi nauðganir segir Andri mikið talað um að stelpur eigi að passa sig hvernig þær klæði sig.

„En það þarf að vinna að þessu með strákum og þeirri ímynd sem strákar hafa um konur. Það þarf að vinna í því sem fyrst svo það festist betur," segir Andri sem telur að 8. og 9. bekkingar hefðu gott af því að horfa á myndina.

„Það var svo lítið af grófum atriðum í þessu. Ég held að það sé best að koma þessum upplýsingum til skila sem fyrst. Sumir byrja að stunda kynlíf í 8. bekk, sumir í 7. bekk - maður veit aldrei. SVo byrja aðrir í menntaskóla. Þótt að það sé kannski erfitt fyrir suma að sjá þetta þá held ég að það sé nauðsynlegt," segir Andri.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×