Efnilegt klúður Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 12. mars 2013 06:00
Bíó, Þetta reddast Leikstjórn: Börkur Gunnarsson Leikarar: Björn Thors, Jón Páll Eyjólfsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Guðrún María Bjarnadóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Halldór Gylfason, Edda Björgvinsdóttir. Björn Thors er hér í hlutverki blaðamanns sem fer ásamt ljósmyndara í Búrfellsvirkjun til þess að taka viðtal við stöðvarstjórann. Kærustur tvímenningana eru dregnar með í ferðina, sem hugsuð er sem vinnuferð með skemmtiívafi, en blaðamaðurinn hefur ekki nokkra stjórn á áfengisneyslu sinni og skandalíserar trekk í trekk. Hugmyndin er góð og persónusköpunin til fyrirmyndar. Framkvæmdin er heldur síðri og áhorfandinn upplifir algjört stefnuleysi á köflum. Tilgangslausar senur eru dregnar á langinn og þegar upp er staðið virðist sem þarna hafi klukkutími verið teygður í einn og hálfan. Þá er hálfgerður byrjendabragur á útliti myndarinnar en myndin er ekki nægilega skýr og klippingin misjöfn. Maður hugsar óneitanlega til hráleika Íslenska draumsins en í henni virkaði hann mun betur, enda kallaði heimildarmyndastíllinn beinlínis á hann. Hér er þetta truflandi en þó er ástæða til að hrósa ljómandi góðu hljóðinu. Annað sem er ljómandi er leikhópurinn og hér stendur hver einasti leikari sig gríðarlega vel. Björn Thors ber af og persóna hans er aumkunarverð en virkilega sannfærandi. Aðrir leikarar eru einnig frábærir og gera nokkuð klúðurslega mynd að ágætri skemmtun. Börkur leikstjóri virðist þrælgóður í að stjórna leikurum og með aukinni vandvirkni á öðrum vígstöðvum er ég sannfærður um að næsta verk hans verður glæsilegt.Niðurstaða: Stefnulaus en alls ekki vonlaus.
Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Halldór Haraldsson er látinn Tónlist Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Fleiri fréttir Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Sjá meira