Lífið

Folk Festival á fimmtudaginn

Ólöf Arnalds spilar á reykjavík Folk festival. Mynd/GVA
Ólöf Arnalds spilar á reykjavík Folk festival. Mynd/GVA
Dagskráin er klár fyrir Reykjavík Folk Festival sem verður haldin í þriðja sinn dagana 7. til 9. mars á Kexi Hosteli við Skúlagötu. Þar kemur fram áhugaverð blanda af eldri og yngri flytjendum. Þokkabót kemur fram eftir langt hlé. Einnig stíga á svið Magnús og Jóhann, Ólöf Arnalds, Puzzle Muteson, Pétur Ben, Valgeir Guðjónsson og fleiri. Forsala fer fram á midi.is. Verð á armbandi sem veitir aðgang að öllum þremur kvöldunum er 7.999 kr. en verð á stök kvöld 3.000 kr. Dagskrá hátíðarinnar má finna á síðunni Folkfestival.is.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.