Lífið

Notast við æfingar sem stjörnurnar í Hollywood elska

Ellý Ármanns skrifar
B your best er þjálfunarprógram sem Margrét Arna Arnardóttir hjá B yoga , sem er ný jógastöð í Nethyl, býður upp á.

Erlendir stjörnuþjálfarar eins og Tracy Anderson, Andie Hecker, Tracey Mallet og Leah Saragho hafa verið að nota umrætt þjálfunarform til að þjálfa stórstjörnur.

Þar má nefna Gwyneth Paltrow, Madonnu, Jennifer Aniston, Courtney Cox, Beyonce, J.Lo, Kelly Ripa, Molly Sims og Naomi Watts. Þekktast er þegar Natalie Portman kom sér í form fyrir Black Swan með samskonar þjálfun.

Þessi mynd var tekin af Margréti og eiginmanni hennar Svavari Þór Guðmundssyni þegar B yoga stöðin hennar opnaði síðasta föstudag.
"Æfingarnar sem við gerum móta líkamann á annan hátt en við þekkjum. Við vinnum með líkamann í mismunandi hreyfiferlum á sama tíma og við erum að spenna, slaka á og teygja á vöðvunum," svarar Margrét spurð út á hvað æfingarnar ganga í B your best prógraminu.

Jennifer Lopez notast við B your best prógrammið.
Viljum ekki stækka vöðvana

"Við þreytum vöðvana og teygjum síðan á þeim og stuðlum þannig að löngum, fallegum, stinnum líkama. Áhersla er lögð á læri, rass, kvið og hendur og með þessu formi af þjálfun finnum við vöðva sem liggja djúpt og við höfum jafnvel aldrei fundið áður. Við viljum ekki stækka vöðvana og láta þá tútna út því að með lengri, stinnari vöðvum er húðin stinnari og helst lengur ungleg."

Natalie Portman kom sér í form fyrir Black Swan með samskonar þjálfun.
Mikilvægt að fólki líði vel

"Mér finnst mikilvægt að fólki líði vel þegar það gerir æfingar. Við notum jóga til að tengjast líkama okkar og þar af leiðandi fáum við meiri gæði út úr hverri æfingu og betri árangur," segir Margrét að lokum.

Nánari upplýsingar á heimasíðu stöðvarinnar Byoga.is.


Tengdar fréttir

Ný jógastöð opnar í Nethyl

Meðfylgjandi myndir voru teknar í formlegri opnun jógastöðvarinnar Byoga.is sem staðsett er í Nethyl. Í stöðinni er notast við margs konar æfingar eða sambland af jóga, pilates, dansi og ballet.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.