Með allt á hreinu á Þjóðhátíð Freyr Bjarnason skrifar 20. mars 2013 10:00 Hljómsveitin vinsæla spilar á þjóðhátíð í eyjum um verslunarmannahelgina. fréttablaðið/daníel mynd/daníel „
Við eigum stórkostlegar og margar dásamlegar minningar frá þessum stað," segir Jakob Frímann Magnússon. Hljómsveitin Stuðmenn spilar á Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina. Þangað mætir hún til leiks með sömu tónleika og hún flutti í Hörpunni í október í fyrra undir yfirskriftinni Með allt á hreinu. Þá voru liðin þrjátíu ár frá gerð kvikmyndarinnar ástsælu, sem var einmitt að hluta til tekin upp á Þjóðhátíð í Eyjum. „Það er tilhlökkunarefni að fara þangað aftur og máta sig við þetta nýja glæsisvið sem þarna hefur verið reist og alla þá umgjörð sem var fyrr á árum mjög ólík því háþróaða fíneríi sem nú er í boði," segir Jakob Frímann, en hljómsveitin spilaði þar síðast 2006. „Þetta er sennilega sú útihátíð sem á sér hvað lengstu og merkustu sögu sem samfelldur vettvangur jöfragleði í Norður-Evrópu." Retro Stefson hefur einnig verið bókuð á Þjóðhátíð og verður þetta í fyrsta sinn sem hljómsveitin stígur þar á svið. „Það má segja að hamraborg Heimaeyjar verði helguð Hamrahlíðarhljómsveitunum Stuðmönnum og Retro Stefson. Það er engin ástæða til að harma það." Forsala miða á hátíðina hefst í dag á Dalurinn.is og er miðaverð 16.900 kr. Fólk getur greiðsludreift miðaverðinu vaxtalaust á fjóra mánuði. Fullt verð við hliðið í Eyjum er 18.900 kr. Salan í Herjólf fyrir Þjóhátíð er einnig að hefjast í dag.
Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Lífið Gosling verður Skrattakollur Bíó og sjónvarp Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Fleiri fréttir Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Sjá meira