Lífið

Konur morgunfúlli en karlar

Læknirinn segir hina fullkomnu lengd blunds vera um 25 mínútur eða níutíu mínútur að lengd.
Læknirinn segir hina fullkomnu lengd blunds vera um 25 mínútur eða níutíu mínútur að lengd. Mynd/Getty
Vísindamenn segja svefnleysi hafa mun verri áhrif á konur en karla, bæði andlega og líkamlega. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem framkvæmd var við Duke-háskóla í Norður-Karólínufylki Bandaríkjanna.

Læknirinn og svefnsérfræðingurinn Michael Breus segir konurnar í rannsókninni hafa verið reiðari á morgnana en karlana, en einnig voru líkamlegir þættir kannaðir og sýndu fram á meiri líkur á hjartasjúkdómum og varanlegs þunglyndis meðal svefnvana kvenna. Lélegur svefn virtist hins vegar ekki hafa nein mælanleg áhrif á karlana.

Mælir læknirinn því með því að konur passi upp á svefninn sinn, og nægi nætursvefninn ekki megi alltaf fá sér blund. Hann segir hina fullkomnu lengd blunds vera um 25 mínútur eða níutíu mínútur að lengd. Annars vakni viðkomandi í verra ásigkomulegi en hann var fyrir.

Það sést kannski ekki á myndinni, en konan er ekki kát með nætursvefninn.Mynd/Getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.