Lífið

Versta símtal í heimi

Poppgoðið Jon Bon Jovi opnar sig í viðtali við Katie Couric í spjallþættinum Katie og talar um það þegar nítján ára dóttir hans, Stephanie Bongiovi, tók of stóran skammt af heróíni í nóvember á síðasta ári.

"Versta símtal í heimi. Vandamálið var mun stærra en ég gerði mér grein fyrir," segir Jon um örlagaríka símtalið sem hann fékk þennan dag. Hann segir Stephanie á batavegi en hún er elst af fjórum börnum hans með eiginkonunni Dorotheu Hurley.

Feðginin á góðri stundu.
"Henni líður vel. Mér finnst það blessun að hún sé heilbrigð og við komumst í gegnum þetta."

Stephanie líður vel í dag.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.