Lífið

Blóð, sviti og tár á brennómóti

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Frá vinstri eru Silja Ívarsdóttir, Ásdís Steingrímsdóttir, Katrín Huld, Eyrún Sara Helgadóttir og Karen Gylfadótti.
Frá vinstri eru Silja Ívarsdóttir, Ásdís Steingrímsdóttir, Katrín Huld, Eyrún Sara Helgadóttir og Karen Gylfadótti. .Mynd/Margrét Júlía
„Við byrjuðum mótið illa og spiluðum ekki nógu vel en síðan náðum við okkur á strik,“ segir Katrín Huld Grétarsdóttir en hún ásamt liðsfélögum sínum í liðinu Bríó unnu Reykjavíkurmótið í innibrennó sem haldið var í Kórnum á laugardaginn.

Spennan var magnþrungin þegar liðin Bríó og Harpix kepptu um gullið og voru Katrín og liðsfélagar hennar í sannkallaðri sigurvímu þegar úrslitin voru ljós.

„Það er mjög sætt að sigra á svona móti, sem við reynum að halda tvisvar á ári. Í öllum liðum eru þrusugóðir leikmenn og því var aldrei nein leið til að spá um hver færi með sigur af hólmi,“ bætir Katrín við.

Hópurinn sem stóð að mótinu hittist tvisvar í viku í Kórnum yfir vetrartímann til að æfa brennó og er öllum konum velkomið að prófa endurgjaldslaust. Á sumrin er síðan brennó spilað úti víðs vegar um borgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.