Fótbolti

Fáir miðar seldir á leikinn og frímiðar líklega gefnir

Suker á góðri stund.
Suker á góðri stund.
Davor Suker, forseti króatíska knattspyrnusambandsins, er undir gríðarlegri pressu fyrir leikinn gegn Íslandi á morgun. Ef Króatía kemst ekki á HM þá fær hann að fjúka.

Það er ekki hægt að reka þjálfarann enda er hann nýtekinn við. Suker yrði að axla ábyrgðina. Margir vilja reyndar losna við hann úr stóli forseta.

Mikil óánægja er í heimalandinu með að Suker sé að lofa leikmönnum um 80 milljónir króna á mann fyrir að komast á HM. Efnahagur landsins er ekki góður og þessi tíðindi voru eins og blaut tuska í andlit þjóðarinnar.

Það segir sína sögu að aðeins hafi verið búið að selja um 11 þúsund miða á leikinn í gær. Það eru skýr skilaboð frá króatískum knattspyrnuunnendum sem eru allt annað en kátir með bæði Suker og landsliðið sitt. Völlurinn tekur 35 þúsund manns.

Suker ætlaði á sínum tíma að byggja nýja VIP-stúku á Maksimir-vellinum. Engin stemning reyndist vera fyrir slíku enda spilar Króatía ekki lengur "VIP-bolta" eins og sagt er í króatískum fjölmiðlum í dag.

Suker er í vandræðum því það mun ekki líta vel út ef völlurinn verður hálftómur. Samkvæmt króatískum fjölmiðlum verður því reynt að gefa einhverja miða í dag en spurningin er hvort einhver vilji fá miðana.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×