Lífið

Jennifer Lawrence bar af

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Leikkonan Jennifer Lawrence var óumdeilanlegur sigurveigari Óskarsverðlaunahátíðarinnar í gærkvöldi. Ásamt því að vinna verðlaunin sem besta leikkona í aðalhlutverki þótti hún líka bera af öllum hinum í klæðaburði og var valin best klædd á öllum helstu tískumiðlum. Jennifer var í guðdómlega fallegum ljósbleikum kjól úr smiðju Christian Dior. Það val kemur engum á óvart, en eins og Lífið greindi frá er Lawrence nýtt andlit auglýsingaherferðar fyrir Dior.

Samkeppnin um téðan titill er mikil, en tískuhúsin hreinlega keppast um að fá að klæða stjörnurnar í hönnun sína ár hvert. Að vera talin best klædd á hátíðinni skiptir því meira máli en margir gera sér grein fyrir og umfjöllunin er gífurleg bæði fyrir leikkonuna og tískuhúsið sem hannar kjólinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.