Færeyingar bjóða Íslendingum til tónlistarveislu í Hörpu Heimir Már Pétursson skrifar 22. október 2013 19:10
Færeyska sinfóníuhljómsveitin heldur upp á þrjátíu ára afmæli sitt með fyrstu heimsókn hljómsveitarinnar til Íslands og býður Íslendingum á frýja tónleika í Hörpu annað kvöld. Fullt var út úr dyrum á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Færeyja í Hofi á Akureyri í gærkvöldi. Færeyingarnir eru rausnarlegir í tilefni 30 ára afmælis hljómsveitarinnar í Hörpu annað kvöld, því frítt er á tónleikana á meðan húsrúm leyfir. Efnisskráin er afar spennandi og meðal annars verður frumflutt verkið Veitsla eftir færeyska tónskáldið Sunnleif Rasmussen, sem segir verkið fullt af gleði. En það var samið að beiðni hljómsveitarinnar í tilefni afmælisins. „Veitsla er gleðiverk þar sem leikið er með allar hliðar veislu. Það er gleði og gaman og eins og hent getur í veislum fer allt á annan endan á köflum. Þar má greina drukkna menn syngja og flest það sem fólk upplifir á mannfögnuðum,“ segir Sunnleif. Að auki flytur hljómsveitin hin gífurlega vinsæla Píanókonsert nr. eitt eftir Tchaikovsky og Tilbrigði Opus 36 eftir breska 19. aldar tónskáldið Edward Elgar. En góðvinur Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Bernharður Wilkinson, stjórnar færeysku sveitinni. „Við vonum að Íslendingar þyggi boðið og mæti í Hörpu annað kvöld og samgleðjist með okkur. Við lítum auðvitað upp til stóra bróður hér á Íslandi og viljum vera saman þegar mikið stendur til,“ segir Bernharður.
Mest lesið Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Erlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Björgvin Halldórsson látinn Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Fleiri fréttir Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Sjá meira