Lífið

Stressuð að vera í bikiníi

Client List-stjarnan Jennifer Love Hewitt prýðir forsíðu tímaritsins Shape í bikiníi einu fata. Hún fékk stuttan tíma til að undirbúa sig fyrir forsíðutökuna og var ekki rótt.

"Ég var mjög stressuð. Ég fékk átta til tíu daga til að undirbúa mig fyrir tökuna. Mig minnir að ég hafi verið að borða pítsu þegar ég fékk símtalið um að vera á forsíðu Shape," segir Jennifer.

Flott kona.
Jennifer tók vel á því í ræktina á þessari rúmu viku til að líta vel út á forsíðunni.

"Ég er í Zumba, Pilates og ég geng mikið. Ég er með lóð á fótunum í vinnunni. Það hjálpar mér því ég hef ekki tækifæri til að fara mikið í ræktina," segir Jennifer sem prýddi líka forsíðu Shape í október árið 2009. Henni finnst það heiður að vera á forsíðunni aftur.

Í sundfötum.
"Ég veit ekki hvort ég er í besta formi lífs míns en mér líður vel. Ég er hamingjusöm og það er gott."

Rauðglóandi.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.