Innlent

Sögðu konu hafa dottið vegna ölvunar og neituðu að borga

Tryggingafélagið Vörður var dæmt í dag i Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að greiða tæplega sextugri konu frístundatryggingu sem konan hafði hjá tryggingafélaginu.

Konan datt á heimili sínu í nóvember 2009 eftir að hún kom heim úr matarboði. Tryggingafélagið vildi meina að konan hefði dottið vegna þess að hún var drukkin og synjaði því konunni um bætur, þar sem í skilmálum tryggingarinnar segir að viðkomandi megi ekki vera undir áhrifum eitur- eða nautnarlyfja eins og það er kallað, þegar slysið á sér stað.

Konan neitaði því alfarið að hún hefði verið drukkin, en játaði að hún hefði verið í matarboði fyrr um kvöldið og drukkið þar borðvín og hugsanlega líkkjör.

Í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að konan virðist ekki hafa sett hendur fyrir sig í fallinu sem gefi til kynna að hún hafi fallið af öðrum ástæðum en áfengisvímu. Svo segir í dómnum að engin vissa sé um að ölvunarástand konunnar hafi leitt til þess að hún féll, auk þess sem hún neitaði staðfastlega að hún hefði verið „full". Var því ekki fallist á það sjónarmið tryggingafélagsins að sýnt hefði verið fram á orsakasamband milli slyssins og áfengisneyslu konunnar.

Tryggingafélaginu Verði er því gert að greiða konunni tryggingabæturnar auk þess sem félaginu er gert að greiða málskostnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×