Sögðu konu hafa dottið vegna ölvunar og neituðu að borga 29. október 2012 13:08
Tryggingafélagið Vörður var dæmt í dag i Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að greiða tæplega sextugri konu frístundatryggingu sem konan hafði hjá tryggingafélaginu. Konan datt á heimili sínu í nóvember 2009 eftir að hún kom heim úr matarboði. Tryggingafélagið vildi meina að konan hefði dottið vegna þess að hún var drukkin og synjaði því konunni um bætur, þar sem í skilmálum tryggingarinnar segir að viðkomandi megi ekki vera undir áhrifum eitur- eða nautnarlyfja eins og það er kallað, þegar slysið á sér stað. Konan neitaði því alfarið að hún hefði verið drukkin, en játaði að hún hefði verið í matarboði fyrr um kvöldið og drukkið þar borðvín og hugsanlega líkkjör. Í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að konan virðist ekki hafa sett hendur fyrir sig í fallinu sem gefi til kynna að hún hafi fallið af öðrum ástæðum en áfengisvímu. Svo segir í dómnum að engin vissa sé um að ölvunarástand konunnar hafi leitt til þess að hún féll, auk þess sem hún neitaði staðfastlega að hún hefði verið „full". Var því ekki fallist á það sjónarmið tryggingafélagsins að sýnt hefði verið fram á orsakasamband milli slyssins og áfengisneyslu konunnar. Tryggingafélaginu Verði er því gert að greiða konunni tryggingabæturnar auk þess sem félaginu er gert að greiða málskostnað.
Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Sjá meira