Friðjón ekki beðinn afsökunar 2. febrúar 2012 11:17 Friðjón Þórðarson. „
Þeir sáu ekki sóma sinn í að biðjast afsökunar," segir Heiðar Ásberg Atlason, verjandi Friðjóns Þórðarsonar, sem hefur stefnt ríkinu vegna ásakana um peningaþvætti. Friðjón var handtekinn í nóvember 2008 vegna gruns um stórfelld auðgunarbrot og brot á lögum um peningaþvætti. Krafist var gæsluvarðhalds yfir Friðjóni vegna málsins en dómari hafnaði kröfunni. Heiðar segir að rannsókn lögreglunnar á máli Friðjóns hafi byggst á vankunnáttu og að rannsakendur hafi ekki skilið gjaldeyrisviðskipti. Þess vegna hafi rannsókn málsins dregist og það velkst í kerfinu í yfir tvö ár. Það var að lokum fellt niður án ákæru. Heiðar vill ekki gefa upp hversu háar miskabætur Friðjón fer fram á, en Friðjón bauðst til þess að fella málið niður gegn því að fá skriflega afsökunarbeiðni. Við því var ekki orðið í morgun og því fyrirséð að málið mun halda áfram. Skaði Friðjóns er talsverður að sögn Heiðars. Þannig missti hann vinnuna auk þess sem hann var nafn- og myndbirtur í fjölmiðlum vegna handtökunnar, en Friðjón var einn fyrsti maðurinn úr viðskiptalífinu sem var handtekinn eftir hrun. Hann tengdist þó ekki hruninu með saknæmum hætti. „Það er alltaf ódýrara að biðjast afsökunar," segir Heiðar um viðbrögð ríkisins, en fyrirtaka fer fram í málinu þann 5. mars næstkomandi.
Tengdar fréttir Stefnir ríkinu vegna ásakana um peningaþvætti Friðjón Þórðarson, fyrrverandi forstöðumaður verðbréfafyrirtækisins Virðingar, hefur stefnt íslenska ríkinu vegna meðferðar lögregluyfirvalda á sakamáli gegn honum. Stefnan verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. 1. febrúar 2012 22:33 Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira
Stefnir ríkinu vegna ásakana um peningaþvætti Friðjón Þórðarson, fyrrverandi forstöðumaður verðbréfafyrirtækisins Virðingar, hefur stefnt íslenska ríkinu vegna meðferðar lögregluyfirvalda á sakamáli gegn honum. Stefnan verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. 1. febrúar 2012 22:33