Sendiherra málaði eitt verkanna 13. janúar 2012 15:30 Ólafur Ólafsson og Libia Castro. Sýning þeirra sem opnar í Listasafni Íslands stendur til 19. febrúar. Fréttablaðið/GVA
Fulltrúar Íslands á Feneyjatvíæringnum á síðasta ári voru þau Libia Castro og Ólafur Ólafsson. Í kvöld verður opnuð sýning í Listasafni Íslands þar sem gefur að líta verkin sem þau sýndu í Feneyjum. „Það var mjög ánægjuleg upplifun að taka þátt í Feneyjatvíæringnum. Við fengum afar góð viðbrögð og færri komust að en vildu á opnunina," segir Ólafur Ólafsson spurður um þátttökuna í þeim merka myndlistarviðburði sem Feneyjatvíæringurinn er. Í kvöld verður opnuð sýningin Í afbyggingu í Listasafni Íslands en þar gefur að líta verk Ólafs og Libiu Castro sem voru fulltrúar Íslands þar á síðasta ári. Meðal þess sem ber fyrir augu eru útgáfur verksins Landið þitt er ekki til sem þau hafa unnið að síðan árið 2003. „Hugmyndin að verkinu kviknaði þegar Bandaríkjamenn lýstu yfir stríði gegn Írak og rökstuddu það með skýringum sem síðar kom í ljós að stóðust ekki. Þrátt fyrir hávær mótmæli gegn stríðinu víða í Evrópu að minnsta kosti þá studdu fjölmargar ríkisstjórnir Bandaríkjamenn, þar á meðal sú íslenska. Í framhaldinu fórum við að velta fyrir okkur hvað hugtakið „Landið mitt" þýðir, er það nothæft ef maður hefur engin völd og áhrif á stefnu þess?" segir Ólafur. Hluti af þessu verki sem stöðugt bætist við er ljósaskilti þar sem ritað er Landið þitt er ekki til og málverk með sömu áletrun sem Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra málaði. „Við fengum utanríkisþjónustuna í lið með okkur við þetta verk. Teiknuðum áletrunina á striga og svo átti Gunnar að mála í fletina sem voru númeraðir," útskýrir Ólafur og bætir við að utanríkisþjónustan hafi hafnað fyrstu umleitan um samstarfið við listamennina. En eftir samningaviðræður hafi Gunnar fallist á að taka þátt í verkinu. „Hann ákvað hins vegar að mála ekki alla fletina og áletrunin endaði sem Landið þitt er til sem okkur þótti áhugavert," segir Ólafur. Listaverk Ólafs og Libiu hafa verið til sýninga víða í Evrópu og segir Ólafur samfélagslegar skírskotanir verkanna skila sér jafnt í Frakklandi, á Spáni og Íslandi. „Við lítum ekki á pólitík sem fjarlægt fyrirbæri, hún er persónuleg og kemur öllum við," segir Ólafur og bætir við að eftir hrun hafi orðið meiri áhugi á pólitískri list og forsendur skapast fyrir hana. „Hrunið breytti þannig skilyrðum listarinnar." Ólafur og Libia munu verða með leiðsögn um sýninguna á sunnudag klukkan tvö. sigridur@frettabladid.is
Menning Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira