Innlent

Ikea innkallar barnastólabelti

Antilop stóllinn sem Ikea varar við.
Antilop stóllinn sem Ikea varar við.
IKEA biður vinsamlega þá viðskiptavini sem eiga ANTILOP háan barnastól frá framleiðanda númer 17389 og með framleiðsludagsetningar 0607-0911 að hafa samband við þjónustuver IKEA (https://www.ikea.is/thjonusta).

Beltið getur opnast við notkun, sem skapar slysahættu. IKEA erlendis hefur fengið átta tilkynningar um belti sem opnast og í þremur þessara tilfella duttu börn úr stólnum og meiddust óverulega. IKEA á Íslandi hafa ekki borist tilkynningar um slys.

Innköllunin nær aðeins yfir ANTILOP stóla frá framleiðanda númer 17389 með framleiðsludagsetningar 0607-0911. Númer framleiðanda og framleiðsludagsetning eru prentuð neðan á sætið.

Viðskiptavinir sem eiga ANTILOP barnastól eru beðnir að athuga númer framleiðanda og framleiðsludagsetningu. Ef númer framleiðandans er 17389 og framleiðsludagsetningin er 0607-0911 eru þeir vinsamlega beðnir að koma í IKEA verslunina eða hafa samband við þjónustuver í síma 520 2500 til að fá nýtt belti þeim að kostnaðarlausu.

Innköllunin nær ekki til annarra IKEA barnastóla. Í tilkynningu frá IKEA biðst verslunin velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×