Friðlýsing Skerjafjarðar er ósamþykkt 4. janúar 2012 05:00 kristinn dagur gissurarson
Skipulagsnefnd Kópavogsbæjar hefur ekki fjallað nægjanlega um friðlýsingu Skerjafjarðar innan sveitarfélagsins, að mati Kristins Dags Gissurarsonar, fulltrúa Framsóknarflokksins í nefndinni. Hann telur formann umhverfis- og samgöngunefndar bæjarins, Margréti Júlíu Rafnsdóttur, hafa fullyrt of mikið um málið, en hún sagði í Fréttablaðinu á mánudag að friðlýsingin gengi í gegn í janúar. „Það er ekkert búið að kynna þetta í skipulagsnefnd, það er aðeins ein kynning komin. Einhvern tímann um mitt árið í fyrra var tæpt óformlega á friðlýsingarmálum,“ segir Kristinn. Hann telur óvíst að meirihluti sé fyrir málinu í nefndinni, enda séu fulltrúar bæjarstjórnarmeirihlutans þar ekki á eitt sáttir. „Menn hafa verið sammála um að það lægi ekkert á því að fara í þessa friðlýsingu vegna þess að það er bæjarvernd á svæðinu, sem er ígildi friðlýsingar. Bærinn hefur verið að standa sig mjög vel í verndun svæðisins.“ Kristinn segist sjálfur efast um að friðlýsingu þurfi. Færa þurfi rök fyrir því að bæjarvernd dugi ekki til. Þá þurfi að leggjast yfir málið, hvað sé verið að friðlýsa, hvað það þýði og hvað það kosti. „Menn mega ekki fara í vinsældapólitík. Friðlýsing er fallegt orð og sumir vilja friðlýsa sem mest,“ segir Kristinn. Hann segir alla vilja passa upp á náttúruna á svæðinu. Annað mál sé hvort úr því þurfi að gera mikið bákn með friðlýsingu.- kóp
Mest lesið Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Innlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Fleiri fréttir Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Viðvaningsháttur Trump-liða, próflausir leigubílstjórar og vel heppnuð ganga Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Sjá meira