Innlent

Flutti tónverk í bílakjallara Hörpunnar

Tónlist flæddi um bílakjallara Hörpunnar í dag þegar flutt var tónverk sem byggir á rannsókn á því hvernig heyrnarlausir skynja tónlist.

Tónverkið er eftir Ragnhildi Gísladóttur. Um er að ræða útskriftarverkefni hennar úr tónsmíðum frá Listaháskólanum. Verkið byggir á niðurstöðum úr rannsókn sem hún vann þar sem skoðað var hvernig og hvort heyrnarlausir skynja tónlist.

Hún fékk til sín hóp heyrnarlausra og spilaði fyrir hann mismunandi tónlist.

„Ég spilaði þetta rosalega hátt og þau voru með hátalara. Ég og táknmálstúlkurinn þurftum að setja á okkur Byko-eyrnahlífar af því þetta var inni í einu rými hjá mér á vinnustofunni," útskýrir Ragga þegar hún er spurð hvernig maður leikur tónlist fyrir heyrnarlausa.

Hún segir alla í hópnum hafa skynjað tónlistina og gert greinarmun verkunum.

„Þau upplifa hana mjög sterkt. Stundum tóku þau hana mjög nærri sér," segir Ragga. Þá segir hún það hafa verið draum hjá sér að halda tónleika í kjallaranum. „Þetta er bara tilraun," segir Ragga og bætir við að maður eigi að gera tilraunir þegar maður er í námi, og hjá sér séu síðustu forvöð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×