"Guðríður talar þvert ofan í sannleikann" 16. janúar 2012 21:45 Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.
Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, segir að meirihluti bæjarstjórnar standi á brauðfótum og mikill trúnaðarbrestur hafi átt sér stað eftir að fréttir bárust af því að Guðrúnu Pálsdóttur, bæjarstjóra hafi verið sagt upp störfum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi hafa óskað eftir að haldinn verði aukafundur í bæjarráði á morgun. Með fundarboðinu vona fulltrúar Sjálfstæðisflokksins að gefin verði svör fyrir því hvers vegna Guðrúnu hafi verið vikið úr bæjarstjórastólnum. Samkvæmt heimildum fréttastofu verður Guðrúnu tilkynnt um uppsögn sína formlega á morgun, en hún vill ekki tjá sig um uppsögnina fyrr en henni hefur verið sagt upp formlega. Ármann Kr. segir í samtali við Vísi stjórnsýslu meirihlutans vera dæmalausa og gagnrýnir starfshætti Guðríðar Arnardóttur, formanns bæjarráðs. Hann segir það vera forkastanlegt að sitjandi bæjarstjóra hafi verið vikið úr starfi óformlega og að engar útskýringar hafi verið gefnar fyrir því. Að auki hafi ákvörðunin verið tekin nokkrum dögum áður en reglubundinn bæjarráðsfundur átti að eiga sér stað. Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld sagði Guðríður að meirihlutinn í bænum standi traustum fótum. „Þarna er manneskja að tala þvert ofan í sannleikann, það sjá það allir," segir Ármann. Hann veltir því fyrir sér hvort að nýr bæjarstjóri geti starfað með meirihlutanum. „Það er alveg ótrúlegt hversu lítið bakland núverandi bæjarstjóri hefur haft í meirihlutanum. Það verður klárlega umhugsunarefni fyrir þann sem tekur við bæjarstjórastóli hvort að mögulegt sé að starfa með slíku fólki."
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira