Innlent

Fann rúmlega 200 þúsund krónur í flugvél

Tíu þúsund krónur í norskum seðlum, sem samsvarar um tvö hundruð og fimmtán þúsundum íslenskra króna, fundust þegar verið var að þrífa eina af flugvélum Iceland Express í gærdag.

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum fundust fjármunirnir við eitt sæti flugvélarinnar. Lögreglunni á Suðurnesjum var gert viðvart um fundinn og eru peningarnir nú í vörslu hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×