Innlent

Ótækt að þingmenn fái ekki aðgang að skýrslu um Búsáhaldabyltinguna

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
„Það gengur ekki að þingið - sem fjallar um öll möguleg mál okkar landsmanna, þar á meðal trúnaðarmál - fái ekki aðgang að þessari skýrslu."

Þetta sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann ræddi þar við þáttastjórnendur um skýrslu sem unnin var um Búsáhaldabyltinguna sem lögreglustjóri vill ekki afhenda.

Sigurður Ingi tók málið upp í forsætisnefnd á grundvelli þess að eðlilegt sé að þingmenni fái aðgang að gögnum og að skýrslan varði öryggismál þingsins. Hann segir að forseti þingsins hafi leitað til lögreglunnar vegna málsins en þar hafi þau svör fengist að skýrslan hafi verið unnin sem innanhúsmál og sem slík sé hún ekki til opinberrar birtingar.

„Eftir sem áður finnst mér það mjög mikilvægt að þessi skýrsla komi fram. Ég held að umræðan síðustu daga sýni fram á nauðsyn þess. Yfirleitt er nú betra að hafa málin upp á borðum svo að menn viti nú hvað þeir eru að tala um."

Sigurður Ingi segir það vera ótækt að lögreglustjóri hafi ekki leyfi til að birta skýrsluna enda geti hún mögulega varpað ljósi á það sem ábótavant er í öryggismálum Alþingis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×