Sala Gagnaveitunnar ill nauðsyn Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 17. október 2012 21:13 Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. „
Það kæmi mér ekki á óvart ef það yrði mikill áhugi frá fjárfestum á Gagnaveitu Reykjavíkur." Þetta segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. Borgarstjórn Reykjavíkur hefur nú gefið Orkuveitu Reykjavíkur umboð til að hefja undirbúning á sölu á 49 prósent hlut í Gagnaveitunni. Í samtali við Vísi sagði Dagur að sala Gagnaveitunnar sé ill nauðsyn. Erfiðleikar Orkuveitunnar kalli á eignasölu og samhliða Gagnaveitunni séu aðrar eignir OR í söluferli - þar á meðal Orkuveituhúsið og Perlan. „Gagnaveitan er ein af þeim eignum sem nefnd var í upphafi," segir Dagur. „Meðal annars vegna þess að þetta er gott fyrirtæki sem skilar miklum eignum." Hann bendir á að miklar afborganir blasi við á næsta ári, því hafi borgarstjórn og stjórn OR nálgast málið af raunsæi og ábyrgð. „Aðalmálið er að björgunaraðgerðirnar gangi eftir," bætir Dagur við. „Og það ætlum við að tryggja."Gagnaveitan rekur meðal annars ljósleiðaratengingar.MYND/AFPGagnaveita Reykjavíkur var stofnuð sem einkahlutafélag árið 2007 og hefur síðan þá verið að fullu í eigu Orkuveitunnar. Gagnaveitan rekur gagnaflutningskerfi, meðal annars ljósleiðaratengingar. „Það eru eflaust margir þolinmóðir fjárfestar sem vilja eiga í fyrirtæki líkt og Gagnaveitan er." En er það ábyrgt af hálfu borgarstjórnar að selja stóran hlut í svo þýðingarmiklu innviðafyrirtæki? „Við reynum að mæta báðum heimum í þessu," segir Dagur. „Annars vegar reynum við að losa um fé. Hins vegar viljum við tryggja það að hraður gagnaflutningur standi fyrirtækjum og heimilum til boða með því selja hluta af fyrirtækinu."
Mest lesið Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Lögregla eltist við afbrotamenn Innlent Fleiri fréttir Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Sjá meira