Sautján daga baráttu um myndun nýs meirihluta gæti lokið um helgina 3. febrúar 2012 12:01 Kópavogur
Sautján daga baráttu við að koma saman nýjum meirihluta í Kópavogi gæti lokið um helgina. Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Lista Kópavogsbúa og Framsóknar hittast til að vinna að málefnasamningi eftir hádegi. Hópurinn hittist í gær og ræddi saman en að sögn Ármanns Kr. Ólafssonar, oddvita Sjálfstæðismanna í Kópavogi, verður fyrsti formlegi málefnafundur flokkanna eftir hádegi í dag. Hann vildi ekkert tjá sig efnislega um málefnavinnuna sem fram undan er, en sagði í samtali við fréttastofu í morgun að æskilegt væri að klára myndun nýs meirihluta nú um helgina. Meirihluti Samfylkingar, Næst besta flokksins og Lista Kópavogsbúa sprakk með nokkrum látum fyrir röskum hálfum mánuði og það hefur ekki verið heiglum hent að raða saman nýjum meirihluta. Ellefu bæjarfulltrúar eru í bæjarstjórn Kópavogs og eru þeir fulltrúar sex flokka. Stærstir eru Sjálfstæðisflokkur með fjóra menn en Samfylking þrjá- þeir voru því einu tveir flokkarnir sem gátu myndað saman meirihluta. Í fyrstu gengu þeir tveir flokkar ásamt Vinstri grænum til meirihlutaviðræðna en upp úr þeim slitnaði á miðvikudaginn. Enda ljóst, samkvæmt heimildum fréttastofu, að Sjálfstæðismenn gengu ekki samtaka til þeirra viðræðna þar sem persónulegar væringar munu vera milli Guðríðar Arnardóttur oddvita Samfylkingar og Gunnars I. Birgissonar fyrrverandi bæjarstjóra. Hann mun hafa lagst gegn samstarfi við Samfylkingu og því hafi í raun ekki verið annað í stöðunni fyrir oddvita Sjálfstæðisflokks en að hefja viðræður við litlu flokkana í bæjarstjórn. Hvað út úr þeim viðræðum kemur ætti að skýrast um helgina.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira