Starfsmaður hjá McDonald's skvetti heitri olíu á viðskiptavin 13. febrúar 2012 21:45 Atvikið átti sér stað í miðborg London á dögunum.
Stjórnandi hjá McDonald's skyndabitakeðjunni skvetti brennandi heitri olíu í andlit viðskiptavinar í miðborg London á dögunum. Maðurinn brenndist í framan, bringu og handleggjum. Lögreglan rannsakar nú málið en olían sem hann skvetti er steikingarolíu, sem notuð er til að djúpsteikja franskar. Á meðal þess sem lögreglan rannsakar er hvort að starfsmaðurinn hafi verið í sjálfsvörn þegar hann skvetti olíunni. Atvikið átti sér stað á aðfaranótt laugardags. Viðskiptavinurinn kom inn á skyndibitastaðinn um klukkan hálf fjögur um nóttina. Hann pantaði sér mat með vini sínum en þeir voru báðir undir áhrifum áfengis. Þegar þeir voru búnir að panta matinn hófust mikil rifrildi á milli starfsmannsins og strákanna. Annar strákurinn er sagður hafa blótað starfsmanninum og hótað að drepa hann. Starfsmaðurinn svaraði þá: "Ef þú kemur yfir afgreiðsluborðið mun ég skvetta á þig olíu." Eftir að starfsmaðurinn lét þessi orð falla hoppaði strákurinn yfir borðið og stóð þá starfsmaðurinn við orð sín, og skvetti á hann olíu. Maðurinn hlaut þriðja stigs bruna í andliti, bringu og á báðum handlegjum. Strákurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann gengst nú undir meðferð vegna brunasáranna. Lögreglan hefur tekið skýrslu af öðrum starfsmönnum og viðskiptavinum sem urðu vitni að atvikinu auk þess sem eftirlitsmyndavélar verða skoðaðar.
Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Innlent Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Innlent Aftur kjörin formaður þrátt fyrir fjárdráttinn sem felldi hana Erlent Fleiri fréttir Skæð hitabylgja velgir Evrópubúum undir uggum Aftur kjörin formaður þrátt fyrir fjárdráttinn sem felldi hana Skaut á slökkviliðsmenn úr launsátri Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Krefjast svara um mögulegar frekari árásir Þúsundir Norðmanna fengu fyrir mistök tilkynningu um að hafa unnið milljónir Hitamet slegið á Spáni um helgina Sæta lögreglurannsókn vegna níðsöngva um ísraelska herinn Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Íranir geti aftur byrjað að auðga úran eftir nokkra mánuði Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Hæstaréttardómarar fjarlægðu flein úr holdi Bandaríkjaforseta Lífstíðarfangelsi fyrir að myrða 14 ára dreng með samúræjasverði Finna fyrir fjarveru Bandaríkjanna á loftslagsfundi en sakna þeirra ekki Ungar konur særðust í skotárás í Nuuk Sá sem samdi Mission: Impossible lagið er látinn Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Dönsk stjórnvöld vilja tryggja fólki höfundarrétt að eigin persónu Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Twitter-morðinginn tekinn af lífi Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin „Áreiðanleg gögn“ sanni verulegt tjón á kjarnorkumannvirkjum Hvar er Khamenei? Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Sjá meira