Unglingar til varnar 13. desember 2012 16:00 Hópur unglinga ákveður að berjast gegn tæknivæddum her Norður-Kóreumanna og verja heimabæinn gegn innrás í kvikmyndinni Red Dawn.
Kvikmyndin Red Dawn segir frá hópi unglinga sem snýst til varnar og berst gegn her Norður-Kóreumanna sem hefur gert innrás í heimabæ þeirra. Spennumyndin Red Dawn verður frumsýnd í kvöld. Myndin er byggð á samnefndri kvikmynd frá árinu 1984 sem skartaði Charlie Sheen og Patrick Swayze í aðalhlutverkum. Red Dawn segir frá smábænum Spokane í Bandaríkjunum sem einn góðan veðurdag er hertekinn af norðurkóreska hernum. Hópur skólakrakka ásamt fyrrverandi landgönguliða ákveða að taka höndum saman og berjast gegn innrásarhernum og frelsa heimabæinn undan oki hans. Hugmyndin er vægast sagt ótrúleg, enda ólíklegt að fámennur hópur unglinga eigi roð í vel þjálfaðan og tæknivæddan her. Hér er því komin enn ein myndin sem fjallar um föðurlandsástina og hvers hún er megnug þegar Bandaríkin standa frammi fyrir utanaðkomandi ógn. Chris Hemsworth og Josh Peck fara með hlutverk bræðranna Jeds og Matts Eckhert sem leiða skæruliðahópinn The Wolverines (nafnið er dregið af fótboltaliði skólans í bænum). Með önnur hlutverk fara Isabel Lucas, Josh Hutcherson, Adrianne Palicki og Connor Cruise, en sá síðastnefndi er sonur leikarans Tom Cruise og stígur hér sín fyrstu skref í kvikmyndaleik. Leikstjóri myndarinnar er Dan Bradley og er Red Dawn frumraun hans sem leikstjóra. Bradley starfaði áður við að samstilla áhættuatriði fyrir kvikmyndir á borð við Independence Day, Spider-Man, The Bourne Supremacy, Where The Wild Things Are, Quantum of Solace og Mission: Impossible – Ghost Protocol. Hasaratriðin og tæknibrellurnar fá mikið vægi í Red Dawn og að mati margra er það gert á kostnað persónusköpunarinnar. Nokkrir gagnrýnendur segja myndina eiga margt sameiginlegt með verkum Michaels Bay, sem leikstýrði meðal annars Transformers myndunum. Mikið er um hasar, hlaup, sprengingar og átök, en minna um góð samtöl eða persónusköpun. Myndin fær hroðalega dóma frá gagnrýnendum sem gefa henni ekki nema 11 prósent á Rottentomatoes.com. Áhorfendur eru ekki jafn dómharðir og gefa henni sextíu prósent.
Mest lesið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Bíó og sjónvarp Gurrý komin aftur á markaðinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ Lífið Súrdeigsbrauðdrottningin breytti pítsadeigi í þriggja rétta grillveislu Lífið samstarf Frumsýning: Íslensk stikla fyrir Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Förðunardrottning selur á Framnesvegi Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Sjá meira