Lífið

Með gerviísa á tvímenningshjóli

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Myndband stuðsveitarinnar Retro Stefson við lagið Glow hefur vakið athygli en því er leikstýrt af Magnúsi Leifssyni.

„Þetta eru gerviísar í myndbandinu, annað hefði ekki verið hægt. Eini ísinn sem er ekta er sá sem dettur í götuna," segir Magnús Leifsson en hann á heiðurinn að vinsælu tónlistarmyndbandi Retro Stefson við lagið Glow.

Myndbandið var frumsýnt í vikunni, en í því sjást bræðurnir Logi og Unnsteinn hjóla um höfuðborgina á tvímenningshjóli með ís í hendi. Magnús sá um leikstjórn og átti hugmyndina að söguþræðinum.

Bræðurnir Unnsteinn og Logi þurftu að æfa sig í þrjá daga áður en þeir náðu tökum á tvímenningshjólinu.
Hann segir þá bræður eiga hrós skilið fyrir að hjóla, næstum sleitulaust, í þrjá daga án þess að kvarta.

„Þeir tóku þetta á sig og stóðu sig vel, enda var þetta mikið flakk um bæinn. Það er snúið að ná tökum á þessu hjóli svo þeir þurftu að æfa sig aðeins áður. Mesta vinnan var fyrir Unnstein, sem er fyrir framan, en Logi flýtur meira með," segir Magnús. Hjólið var fengið á hjólaleigu í miðbænum.

Lokasena myndbandsins er af bíl reykspólandi í bleikum reyk.
Ísarnir vöktu athygli og margir hafa velt fyrir sér hversu margir ísar hafi verið notaðir í tökur. Þeir eru hins vegar sérhannaðir úr frauðplasti og var því engin hætta á að þeir bráðnuðu meðan á tökum stóð.

„Þetta kom vel út. Ég var smá hræddur um að einhver tæki eftir að ísarnir væru gerviísar en svo var ekki."

Tökuliðið Unnsteinn, Logi og Magnús ásamt Arró tökumanni, Óla Finns framleiðanda, Sigurði Eyþórs klippara, Henrik Linnet sem sá um sjónbrellur og Haraldi í Retro Stefson.
Magnús hefur áður leikstýrt tónlistarmyndböndum fyrir sveitir á borð við FM Belfast. Hann er grafískur hönnuður að mennt en upp á síðkastið hefur hann verið upptekinn við tökur á þriðju seríunni af Steindanum okkar sem handritshöfundur. Þættirnir hafa átt góðu gengi að fagna en aðstandendur þáttanna hafa gefið út að nú sé Steindaævintýrinu lokið.

„Við vildum hætta áður en þetta yrði þreytt. Við lögðum allt í þessa seríu og nú er maður bara í spennufalli og smá lífskrísu. Ég er samt alveg viss um að samstarfi okkar Steinda og Bents er ekki lokið og við gerum fleiri skemmtilega hluti saman í framtíðinni."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.