Lífið

Í faðmlögum

Robert Pattinson sást í faðmlögum við óþekkta stúlku á skemmtistað í New York. 
Nordicphotos/getty
Robert Pattinson sást í faðmlögum við óþekkta stúlku á skemmtistað í New York. Nordicphotos/getty
Leikarinn Robert Pattinson hefur undanfarið verið að sleikja sárin eftir framhjáhald fyrrverandi kærustu sinnar Kristen Stewart. Síðustu vikur hafa slúðurmiðlar velt fyrir sér hvort Pattinson hafi fyrirgefið svikin og sé búinn að taka við Stewart á ný.

Leikarinn gerði hins vegar út um það er hann var myndaður í faðmlögunum við óþekkta ljóshærða stúlku á skemmtistað í New York í vikunni. Slúðurmiðillinn Tmz.com birtir myndirnar og hefur eftir ónafngreindum heimildamönnum að Pattinson hafi ekki slitið sig frá stúlkunni allt kvöldið.

Forvitnilegt verður að fylgjast með þeim Stewart og Pattinson er nýjasta Twilight-myndin, The Twilight Saga: Breaking Dawn-Part 2, verður frumsýnd í nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.