Lífið

Skilnaðurinn gengur hægt

Demi Moore og Ashton Kutcher eiga erfitt með skipta á milli sín eignum og því hefur skilnaðurinn tafist. 
Nordicphotos/getty
Demi Moore og Ashton Kutcher eiga erfitt með skipta á milli sín eignum og því hefur skilnaðurinn tafist. Nordicphotos/getty
Rúmlega ár er síðan Hollywood-parið Ashton Kutcher og Demi Moore skildu en skilnaðurinn er þó ekki enn þá genginn í gegn. Hjónin eiga víst erftt með að skipta á milli sín eignum og peningum. Eignir þeirra eru metnar á nokkra milljarða en Moore og Kutcher voru gift í sex ár. Í byrjun hjónabandsins var Moore meiri stjarna en síðustu ár hefur Kutcher verið að klifra upp metorðastigann í Hollywood.

Kutcher hefur nú tekið saman við leikkonuna Milu Kunis og hún er eflaust ekki ánægð með að hann sé enn þá giftur Moore.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.