Leituðu að tökustöðum fyrir stórmynd - Hrifnastir af jöklunum 9. október 2012 00:00 Tökustaðastjórarnir Ilt Jones og Dow Griffith, hér með blaðamanninn Nick Gaundry frá The Location Guide á milli sín, dásömuðu land og þjóð er þeir leituðu að tökustöðum fyrir nýja stórmynd. „
Ég held að við höfum heimsótt alla staði á Íslandi fyrir utan Raufarhöfn," segir Árni Björn Helgason hjá Saga Film. Hann sá um að lóðsa tvo frægustu tökustaðastjóra í Hollywood um Ísland í lok september. Tökustaðastjórarnir Ilt Jones og Dow Griffith komu hingað ásamt blaðamanni vefsíðunnar The Location Guide. Jones og Griffith sjá um að flakka heimshorna á milli í leit að tökustöðum fyrir stærstu kvikmyndaframleiðslur vestanhafs. Þeir eru með myndir eins og The Dark Knight Rises og The Bourne Legacy á ferilskránni. „Jones komst með stuttum fyrirvara vegna þess að leikarinn Robert Downey Jr. fótbrotnaði og þurfti því að gera hlé á tökum á Iron Man 3 sem hann er að vinna í núna. Það var mjög gaman að vera innan um þess reynslubolta í bransanum. Þessir tveir eru án efa virtustu mennirnir í geiranum." Ástæðan fyrir komu Griffith og Jones var leit að tökustöðum fyrir nýja mynd. „Ég get því miður ekki sagt nafnið á henni, en get staðfest að þetta er stórmynd sem á að taka upp á næsta ári. Þeir mynduðu landið í bak og fyrir og svo krossar maður bara putta og vonar að leikstjóranum líki það sem hann sér," segir Árni Björn en alls dvöldu félagarnir hér á landi í níu daga.Vefsíðan The Location Guide fjallar um ferðalagið í stórri grein. Þar er hörkuleg náttúra Íslands dásömuð ásamt gestrisni og þjónustulund Íslendinga sem kunna greinilega á þarfir kvikmyndatökuliða, að sögn síðunnar. „Það eru einna helst jöklarnir sem heilla ,því það er svo sjaldgæft að ekki þurfti að fara lengra eða hærra upp til að mynda snæviþakta auðn," segir Árni og bætir við að Ísland sé heldur betur búið að stimpla sig inn sem verðugur vettfangur til stórrar kvikmyndaframleiðslu. „Síðustu tvö ár hafa verið rosalega góð í þessum geira og það lítur út fyrir að ekkert lát sé þar á." Meðal þeirra mynda sem hafa verið teknar upp hér á landi undanfarið eru Promotheus, Oblivion, The Secret Life of Walter Mitty og svo er leikstjórinn Alan Taylor á leiðinni hingað á næstu dögum með tökulið Thor 2. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Sjá meira