ÍSÍ fordæmir ofbeldisfullar busavígslur 13. júní 2012 09:15 Umfjöllun um ofbeldisfullar busavígslur innan íþróttahreyfinga kom framkvæmdastjóra ÍSÍ verulega á óvart. Fréttablaðið/Gva „
Við munum klárlega senda þá áskorun til okkar sérsambanda að við fordæmum alla slíka hegðun í ljósi þessarar umræðu,“ segir Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ). „Svona á ekki að eiga sér stað.“ Ómar Ragnarsson greindi frá því á bloggsíðu sinni um helgina að busanir nýliða innan íþróttahreyfinga landsins verði oft svo ofbeldisfullar að mennirnir sem fyrir þeim verða geti vart setið eða gengið á eftir, meðal annars eftir að hafa verið hýddir í sturtu. Líney segir fregnirnar hafa komið sér í opna skjöldu og lét sviðsstjóra innan sambandsins, Viðar Sigurjónsson, því kanna málið. Viðar hafði samband við sérsambönd ÍSÍ og segist ekkert hafa heyrt sem rími við frásögn Ómars. „Ég hef talað við forystumenn sambandanna og þeir kannast ekki við þessi mál með þeim hætti sem Ómar lýsir,“ segir hann. „En það breytir því ekki að við hjá forystusveit hreyfingarinnar tökum allt svona alvarlega. Við munum senda út ábendingar til okkar sambandsaðila um að skoða þessi mál innan sinna raða til að vera viss um að svona tíðkist ekki.“ Viðar segir sömu þróun hafa orðið innan íþróttahreyfinga varðandi nýliðavígslur og hjá framhaldsskólum. Nýliðar í landsliðum séu nú til dags látnir flytja ræður, syngja lög eða bera töskur. Ofbeldi eins og hýðingar tíðkist ekki. „Val á hugtökum í bloggi Ómars á ekkert skylt við það sem á sér stað innan hreyfingarinnar,“ segir Viðar. - sv
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira