Lífið

Cannes á enda

Það var öllu tjaldað til á lokakvöldi Kvikmyndahátíðarinnar í Cannes á mánudagskvöldið.

Eftirsóttustu verðlaun hátíðarinnar, Gullpálminn, runnu til myndarinnar Amour eftir ástralska leikstjórann Michael Haneke en athygli vakti að Bandaríkin áttu engan fulltrúa meðal verðlaunahafa. Hægt er að sjá sýnishorn úr Amour hér fyrir ofan.

Þá fögnuðu prúðbúnir gestir meðal annars danska leikaranum Mads Mikkelsen er hann tók á móti verðlaunum sem besti leikarinn.

Dómnefndin brá á leik á rauða dreglinum.Nordicphotos/afp
Dómnefnd þessa árs samanstóð af leikstjóranum Alexander Payne, fatahönnuðinum Jean-Paul Gaultier, leikkonunni Emmanuelle Devos, leikstjóranum Andrea Arnold, leikstjóranum og formanni dómnefndar Nanni Moretti, leikstjóranum og framleiðandanum Raoul Peck, leikkonunni og leikstjóranum Hiam Abbass, leikaranum Ewan McGregor og leikkonunni Diane Kruger.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.