Bretar heilluðust af hundakúnstum Pudsey 14. maí 2012 10:00 Ashleigh Butler og Pudsey báru sigur úr býtum í Britain´s Got Talent á bresku sjónvarpsstöðinni ITV. Fréttablaðið/AP
Tvíeykið Ashleigh og Pudsey vann hæfileikakeppnina Britain"s Got Talent og fékk í sigurlaun eitt hundrað milljónir króna. Tvíeykið Ashleigh og Pudsey bar sigur úr býtum í hæfileikakeppninni Britain"s Got Talent og tryggði sér þar með hálfa milljón punda í sigurlaun, eða um hundrað milljónir íslenskra króna. Hin sautján ára Ashleigh Butler þjálfaði hundinn sinn Pudsey til að stökkva og dansa með henni í úrslitaþættinum í atriði við tónlistina úr Mission Impossible-myndunum. Dómarinn Simon Cowell sagði að tvíeykið, sem er frá Northamptonskíri, væri eitt af uppáhaldsatriðum hans frá upphafi þáttanna. Samkvæmt upplýsingum sjónvarpsstöðvarinnar ITV sem sýndi þættina sáu 14,5 milljónir manna úrslitaþáttinn. Þegar kynnarnir Ant og Dec tilkynntu sigurvegarana táraðist Butler. „Mig langar að þakka öllum sem kusu mig. Ég er virkilega stolt af Pudsley.“ Hún bætti því við að hundurinn hefði hagað sér eins og díva undanfarnar vikur, þar á meðal heimtað steikur í kvöldmatinn, samkvæmt frétt BBC. Annað tvíeyki, óperudúóið Jonathan og Charlotte, lenti í öðru sæti en margir höfðu spáð þeim sigri. Þau sungu lagið The Prayer í úrslitaþættinum og tókst þeim vel upp. „Við lentum í öðru sæti af sjötíu þúsund manns. Það er ótrúlegt og þetta hefur verið svakalega gaman,“ sagði Charlotte. Í þriðja sæti lenti Only Boys Aloud, sem er kór skipaður 133 strákum.
Mest lesið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Lífið Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Lífið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Höguðu sér vel á árshátíð Haga Lífið Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Lífið Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Lífið Fleiri fréttir Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Sjá meira