Mannskæðasta árás frá byrjun 11. maí 2012 04:30 Stjórnin kennir hryðjuverkamönnum um árásirnar en uppreisnarmenn segja stjórnina sjálfa standa á bak við þær. nordicphotos/AFP
Tvær sprengjuárásir sjálfsvígsmanna kostuðu að minnsta kosti 55 manns lífið í Damaskus, höfuðborg Sýrlands. Nærri 400 manns eru særðir. Þetta eru mannskæðustu ofbeldisverkin í landinu frá því uppreisnin gegn Bashar al-Assad forseta hófst snemma á síðasta ári. Að venju kenna stjórnvöld hryðjuverkamönnum um árásirnar. Uppreisnarmenn svara síðan eins og venjulega með því að fullyrða að stjórnin sjálf hafi látið gera þessar árásir í þeim tilgangi að kasta rýrð á stjórnarandstæðinga. Bæði stjórnarherinn og sveitir uppreisnarmanna hafa samþykkt vopnahlé, sem eftirlitsmenn á vegum Sameinuðu þjóðanna eiga að fylgjast með. Samtök, sem hafa Al-Kaída að fyrirmynd, hafa undanfarið lýst ábyrgð sinni á nokkrum sprengjuárásum, sem bendir til þess að hryðjuverkamenn séu í reynd farnir að notfæra sér ástandið og blanda sér í átökin. Robert Mood, hinn norski yfirmaður friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna í Sýrlandi, sagði sýrlensku þjóðina ekki eiga skilið að þola þetta ofbeldi. „Það mun ekki leysa nein vandamál,“ sagði hann, spurður hvort hann hefði einhver skilaboð til árásarmannanna. - gb
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Sjá meira