Varar íslensku þjóðina við Grínmúrarareglunni 10. maí 2012 09:30 „
Þetta félag er svolítið eins og Sjálfstæðisflokkurinn, til að tryggja að félagsmenn séu í góðum stöðum og að þeim líði vel," segir Mið-Íslandsgrínarinn Dóri DNA um Íslensku Grínmúrararegluna. Íslenska Grínmúrarareglan er aðilinn á bakvið dularfullt merki sem landsmenn hafa eflaust tekið eftir í lok Mið Íslands-þáttanna og Steindans okkar, auk þess sem það sést á óáberandi stað á vefsíðunni Flick my life. Þá er það væntanlegt á fleiri staði að sögn Dóra. „Það er verið að vígja inn fleiri meðlimi „as we speak" og það eru stór nöfn. Við erum búin að skapa okkur sess í sjónvarpinu og á netinu en nú ætlum við að færa okkur yfir í myndrænt, prentað grín," segir hann. Aðspurður hvort reikna megi með að sjá menn eins og Hugleik Dagsson bera merkið segist hann hvorki geta játað því né neitað, enda sé þetta leynifélag. „Þeir vita að ég er að tala við þig um þetta og eru ekki sáttir. Allir meðlimir reglunnar myndu neita tilveru hennar staðfastlega, enda er það í lögum. Ég er því að brjóta lögin gróflega," segir Dóri og viðurkennir að hann óttist mjög afleiðingar þess brots síns að ræða regluna við blaðamann. „Ef næsta frétt sem þú skrifar er um dularfullt mannshvarf á stórum manni úr Vesturbænum þá veistu hvað hefur gerst og lögreglan veit þá hvar er rétt að byrja að leita," bætir hann við. Blaðamaður hefur ekki farið varhluta af ógnum Grínmúrarareglunnar og fengið misalvarlegar hótanir frá hópnum eftir að hafa rætt við Dóra. „Þeir eru blíðir þegar það á við en eru óhræddir við að vera harðir þegar þess þarf. Yfirlýst markmið reglunnar er að stjórna gríni á Íslandi, sama hvað það kostar," segir Dóri og bætir við að reglulega séu haldnir fundir þar sem hernaðaraðgerðir séu planaðar. „Einu skilaboðin sem ég hef handa íslensku þjóðinni eru bara að passa sig, því við erum að skipuleggja okkur," segir hann. Síðasti þáttur Mið Íslands verður sýndur á Stöð 2 í kvöld og verður spennandi að sjá hverju grínistarnir taka þar upp á. Þættirnir hafa hlotið misjafnar viðtökur en yfir 400.000 manns hafa skoðað vinsælasta atriðið þeirra, sem fjallar um Andrés Önd, á netinu. tinnaros@frettabladid.is
Mest lesið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Lífið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Lífið Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Tíska og hönnun Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Lífið Fleiri fréttir Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Sjá meira