Stefnt að hæli í Bandaríkjunum 1. maí 2012 03:15 Chen Guangcheng flúði úr stofufangelsi í Kína og dvelst nú í sendiráði Bandaríkjanna í Peking. nordicphotos/AFP
Bandarískir og kínverskir embættismenn vinna nú að samkomulagi um að kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng fái hæli í Bandaríkjunum. Búist er við niðurstöðu innan skamms, að minnsta kosti áður en Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur í heimsókn til Kína síðar í vikunni. „Þetta fer í rauninni eftir vilja Kínverja til þess að auðvelda brottflutning Chens,“ segir Bob Fu hjá mannréttindasamtökunum ChinaAid, sem hafa höfuðstöðvar í Bandaríkjunum. Chen flúði úr stofufangelsi í síðustu viku og er sagður kominn undir verndarvæng bandaríska sendiráðsins í Peking. Í stuttu myndbandsávarpi, sem hann gerði eftir að hann flúði, minnist hann ekkert á að hann vilji fara úr landi. Þess í stað krefst hann þess að ofbeldi, sem hann segir embættismenn hafa beitt sig sjálfan og fjölskyldu sína, verði rannsakað. Chen er sjálfmenntaður lögfræðingur, blindur frá barnsaldri, og var dæmdur í fangelsi árið 2006 eftir að hann hafði vakið athygli á nauðungarfóstureyðingum í sveitum Kína í tengslum við þá stefnu stjórnvalda að enginn megi eignast fleiri en eitt barn um ævina. - gb
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Innlent Fleiri fréttir „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Sjá meira