Rekstrarniðurstaða OR batnaði til muna 17. mars 2012 08:00 OR tókst á árinu 2011 að ná markmiðum sínum um verulega bætt sjóðflæði. Þungir gjalddagar bíða fyrirtækisins á næstu misserum. Fréttablaðið/Vilhelm
Orkuveita Reykjavíkur birti í gær ársreikning fyrir 2011. Rekstrartekjur fyrirtækisins hækkuðu um 20% og rekstrarkostnaður lækkaði um rúm 11%. Gríðarháar skuldir sliga enn fyrirtækið en sparnaðaráætlun stjórnar hefur staðist til þessa. Orkuveita Reykjavíkur (OR) tapaði 556 milljónum króna á árinu 2011 samanborið við 13,7 milljarða hagnað á árinu 2010. Viðsnúningurinn skýrist að stærstu leyti af veikingu krónunnar á árinu sem hefur hækkað virði erlendra skulda fyrirtækisins. Áætlanir stjórnar OR um tiltekt í rekstri fyrirtækisins hafa hins vegar staðist og gott betur en rekstrarhagnaður fyrirtækisins rúmlega tvöfaldaðist á milli ára. Rekstrartekjur hækkuðu þannig úr 27,9 milljörðum í 33,6 milljarða á meðan rekstrarkostnaður lækkaði úr 14,0 milljörðum í 12,4 milljarða. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársreikningi OR fyrir árið 2011 sem birtur var í gær. Sem fyrr ber að skoða rekstur OR með hliðsjón af þungri skuldastöðu fyrirtækisins en í mars á síðasta ári var kynnt aðgerðaáætlun sem miðar því að tryggja rekstrargrundvöll fyrirtækisins. Þar á meðal samþykktu sveitarfélögin sem eiga fyrirtækið að veita því 12 milljarða króna víkjandi lán. Áætlun OR nefnist „Planið“ og nær til ársins 2016. Í henni hefur fyrirtækið sett sér markmið um hagræðingu í rekstri á hverju ári til og með 2016. Stefnir það að því að ná fram sparnaði sem nemur rétt rúmum 50 milljörðum króna á tímabilinu umfram fyrri áætlanir, meðal annars með sölu eigna, frestun fjárfestinga og hagræðingu í rekstri. Mun fyrirtækið framvegis birta skýrslu um hvernig miðar að ná settum markmiðum samhliða birtingu ársfjórðungsuppgjöra. Slík skýrsla var birt í annað sinn í gær. Kemur þar fram að markmið OR um að bæta sjóðflæði fyrirtækisins um 11,5 milljarða á árinu 2011 náðist en alls var það bætt um 12,7 milljarða þrátt fyrir óhagstæða þróun ytri breyta. Var raunárangur í flestum tilfellum talsvert betri en stefnt var að en sérstaka athygli vekur þó að rekstrarkostnaður var lækkaður um tæpar 750 milljónir sem er langt umfram markmið stjórnar sem hljóðaði upp á 300 milljónir. Í tengslum við lækkun rekstrarkostnaðar hefur starfsfólki verið fækkað nokkuð hjá OR eða um alls 68 á árinu. Þá hefur starfsmönnum fækkað um 154 frá því þegar mest var árið 2008. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Allar stöðvar ræstar út vegna elds á Holtavegi Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Sjá meira