Innlent

Kona í fyrsta skipti formaður

Svana Helen Björnsdóttir
Svana Helen Björnsdóttir
Svana Helen Björnsdóttir var í gær kjörin formaður Samtaka iðnaðarins. Hún tekur við af Helga Magnússyni, sem hefur verið formaður síðan árið 2006.

Svana Helen er fyrsta konan til að gegna embættinu. Hún hafði betur í kjöri gegn Haraldi Ólafssyni, framkvæmdastjóra málmendurvinnslunnar Furu. Hún fékk 94.440 atkvæði eða 58,6 prósent greiddra atkvæða.

Svana Helen er framkvæmdastjóri ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtækisins Stiku. - th




Fleiri fréttir

Sjá meira


×