Innlent

Talin hafa beitt konuna afar grófu ofbeldi

Mikill viðbúnaður var við Héraðsdóm Reykjaness í gær þegar fjórir einstaklingar tengdir Hells Angels voru leiddir fyrir dómara.
Mikill viðbúnaður var við Héraðsdóm Reykjaness í gær þegar fjórir einstaklingar tengdir Hells Angels voru leiddir fyrir dómara.
Fjórir einstaklingar tengdir Hells Angels voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Á meðal þeirra er Einar Marteinsson, foringi samtakanna á Íslandi. Gæsluvarðhald var framlengt í fjórar vikur. Mikill viðbúnaður var í Héraðsdómi þegar úrskurðurinn var kveðinn upp.

Um er að ræða þrjá karla og eina konu sem réðust inn á heimili konu í Hafnarfirði í desember og misþyrmdu henni gróflega. Fólkinu var birt ákæra við dóminn í gær, en tveir til viðbótar eru ákærðir í málinu, sex einstaklingar alls.

Í úrskurðinum kemur fram að þegar lögreglan mætti á heimili konunnar þann 22. desember síðastliðinn hafi hún verið meðvitundarlaus. Ráðist hafði verið inn í íbúð konunnar og henni misþyrmt gróflega. Hún var tekin kverkataki, sparkað var í hana og hún lamin með kylfu þar til hún missti meðvitund um stund. Fólkið reyndi svo að klippa fingur af konunni með klippum, beitti hana grófu, kynferðislegu ofbeldi og dró hana á hárinu um íbúðina.

Fólkið var úrskurðað í áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×