Horn ekki á markað á næstunni 14. mars 2012 07:00 Stefnt var að sjö nýskráningum í Kauphöllina á þessu ári en nú hyggst Landsbankinn, eigandi Horns fjárfestingafélags sem átti að vera fyrst, skoða aðra kosti. Fréttablaðið/GVA
Horn fjárfestingafélag, dótturfélag Landsbankans, verður ekki skráð á hlutabréfamarkað á næstunni eins og til stóð. Stefnt er að því að taka ákvörðun um framtíð Horns á næstu vikum. Í tilkynningu Landsbankans kemur fram að bankinn telji óvíst að hann mundi ná því markmiði sínu að selja 80 til 90 prósenta hlut í félaginu á skömmum tíma með skráningu í Kauphöllina. Því hafi bankinn ákveðið að kanna fleiri leiðir varðandi sölu á Horni. Enn fremur segir að bankinn leggi áherslu á að hámarka virði eignarhluta sinna í félögum. Þá sé stefnt að því að draga úr vægi hlutabréfaeignar í félögum í ótengdum rekstri á efnahagsreikningi bankans. Heildareignir Horns eru um 30 milljarðar króna og er eigið fé félagsins um 24 milljarðar. Meðal eigna félagsins eru Intrum Justitia, 3,95 prósenta hlutur í Eimskipi, 12,5 prósent hlutur í Eyri Invest og 49,9 prósenta hlutur í Promens. Samkvæmt formlegum áætlunum Kauphallarinnar er gert ráð fyrir sjö nýskráningum á þessu ári þótt einhverjar þeirra kunni að dragast fram á næsta ár. Horn átti að vera fyrst í þessum eða næsta mánuði en flestar nýskráninganna áttu að vera haust. Í desember síðastliðnum fór fyrsta nýskráning félags í Kauphöllina eftir bankahrun fram þegar Hagar voru skráðir á markað.- mþl
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira