Rannsókn á Íbúðalánasjóði tefst til hausts 13. mars 2012 06:00 Rannsóknarnefnd um starfsemi sjóðsins hefur beðið um frest til haustsins til að skila úttekt sinni. Fréttablaðið/GVA
Stjórnsýsla Rannsóknarnefnd Alþingis, sem gert var að rannsaka starfsemi Íbúðalánssjóðs frá árinu 2004 til ársloka 2010, náði ekki að ljúka starfi sínu á tilsettum tíma þar sem verkefnið reyndist mun umfangsmeira en í fyrstu var talið. Við skipun nefndarinnar í upphafi septembermánaðar á síðasta ári, var gert ráð fyrir að úttektinni yrði lokið innan sex mánaða, en sá frestur rann út í síðustu viku. „Það varð fljótlega ljóst að verkefnið yrði tímafrekara en talið var í fyrstu,“ segir Sigurður Hallur Stefánsson, formaður nefndarinnar, í samtali við Fréttablaðið. „Umbeðin úttekt var yfirgripsmikil, en svo stækkaði verkefnið svo að segja með hverjum steini sem velt var. Því var ljóst að við myndum þurfa frest, sem við fengum frá forsætisnefnd Alþingis, en við göngum út frá því að ná að ljúka verkinu fyrir haustið.“ Fyrri tímamörk úttektarinnar miðast við breytingarnar sem gerðar voru á sjóðnum og lánareglum hans árið 2004. Markmið rannsóknarinnar, samkvæmt þingsályktun um stofnun nefndarinnar, er í fyrsta lagi að „meta áhrifin af þessum breytingum, stefnu sjóðsins og einstökum ákvörðunum á þessum tíma á fjárhag sjóðsins og fasteignamarkaðinn í heild sinni, í öðru lagi að meta áhrifin af starfsemi Íbúðalánasjóðs á stjórn efnahagsmála og í þriðja lagi að leggja mat á hversu vel sjóðnum hefur tekist að sinna lögbundnu hlutverki sínu á þessu tímabili.“ Þegar niðurstöður liggja fyrir mun taka við heildarendurskoðun á sjóðnum og húsnæðislánakerfinu á Íslandi.- þj
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira