Óvissa ríkir um kostnað Landsvirkjunar 12. mars 2012 06:00 Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir ekki ljóst hvort sveitarfélög leggi skatt á vatnsréttindi þó þau verði tekin til fasteignamats.
Landsvirkjun segir ekki unnt að segja til um á kostnað fyrirtækisins vegna úrskurðar innanríkisráðuneytisins um að meta skuli vatnsréttindi til fasteignamats á þessu stigi. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í síðustu viku vill Fljótsdalshérað að Þjóðskrá meti vatnsréttindi í Jökulsá á Dal til fasteignamats á næstu tveimur mánuðum í kjölfar úrskurðar innanríkisráðuneytisns sem einmitt lýtur að vatnsréttindum í Jökulsá sem knýr Kárahnjúkavirkjun. Einnig að metin verði vatnsréttindi við Lagarfossvirkjun og Grímsárvirkjun sem sömuleiðis eru í sveitarfélaginu. Ætlunin er síðan að leggja fasteignagjöld á vatnsréttindin.Magnús Þór Gylfason, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, segir niðurstöða ráðuneytisins vera þá að skrá skuli í fasteignaskrá vatnsréttindi sem skilin hafa verið frá jörð, og þau metin til verðs. „Málið er til skoðunar innan Landsvirkjunar, en ekki hefur verið tekin afstaða til þess hvort látið verði reyna á niðurstöðuna fyrir dómstólum. Væntanlega hefur niðurstaðan fordæmisgildi og hefði því áhrif á mun fleiri aðila en Landsvirkjun,“ bendir Magnús á. Að svo komnu máli er ekki hægt að segja með vissu hver áhrifin á Landsvirkjun geti orðið verði þetta hin endanlega niðurstaða. „Fasteignamat myndar grunn til álagningar fasteignagjalda en hins vegar liggur ekki fyrir á hvaða grundvelli verðmat á vatnsréttindum færi fram. Þá liggur ekki heldur fyrir hvort sveitarfélög ákveði að leggja skatt á vatnsréttindi í kjölfar niðurstöðu ráðuneytisins um skráningarskyldu þeirra,“ segir Magnús Þór.- gar
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Sjá meira