Frumvarpinu sjálfu ekki breytt 12. mars 2012 05:00 Stjórnlagaráð kom saman til aukafundar þar sem leitast var við að svara spurningum alþingismanna og skýra ýmis ákvæði. Fréttablaðið/Vilhelm „
Við erum annars vegar að svara spurningum og rökstyðja okkar sýn á stöku ákvæði sem ábendingar komu fram um, og hins vegar nefndum við valkosti við umdeild ákvæði,“ segir Gísli Tryggvason, einn fulltrúa í stjórnlagaráði, í samtali við Fréttablaðið. Ráðið lauk störfum í gær eftir fjögurra daga fund þar sem farið var yfir spurningar frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis um ákvæði í frumvarpi til stjórnskipunarlaga. „Við breytum ekki frumvarpinu, en við stingum upp á valkostum við ýmis ákvæði ef Alþingi, sem fer með frumkvæðisvald að stjórnarskrárbreytingum, vill sjá breytingar þar á.“ Gísli nefnir sem dæmi að ráðið undirstriki að málskotsréttur forseta haldist óbreyttur í öllum tilfellum. Þá komi fram í svörum þess að þó Alþingi ákveði að setja inn ákvæði um að minnihluti á þingi fái málskotsrétt, eða að hækka hlutfall kjósenda sem frumvarpið tiltekur til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu, muni það ekki raska frumvarpinu eða kalla fram aðrar breytingar á því. Varðandi framhaldið segir Gísli að sínar væntingar séu að nú verði frumvarpið lagt fyrir þjóðina í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu meðfram forsetakosningum. „Þannig fær þjóðin að segja sína skoðun á frumvarpinu í heild sinni áður en Alþingi afgreiðir það endanlega.“- þj
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Sjá meira