Innlent

Greining sýnir veikleika almannavarna

Mannheimar eru víða veikir fyrir. Aðeins ein samræmd viðbragðsáætlun er til vegna eldgosa hér á landi; fyrir Kötlu og Eyjafjallajökul.
Mannheimar eru víða veikir fyrir. Aðeins ein samræmd viðbragðsáætlun er til vegna eldgosa hér á landi; fyrir Kötlu og Eyjafjallajökul.
Auka þarf viðbúnað í almannavarnakerfinu verulega, er niðurstaða áhættuskoðunar Almannavarna fyrir landið allt. Vinna er þegar hafin vegna atburða sem taldir eru geta haft í för með sér „mikla eða gífurlega áhættu“ og settar voru í fyrsta forgang í greiningu sem staðið hefur yfir árum saman. Þar má nefna hættumat vegna eldgosa á landinu, viðbragðsáætlun vegna gróðurelda, áætlanagerð og æfingar vegna hópslysa bæði í siglingum og í umferðinni.

Áhættuskoðunin, sem birt var í fyrir helgi, fjallar um þær hættur sem almannavarnir gætu þurft að takast á við í framtíðinni, og unnin með heimamönnum í öllum 15 lögregluumdæmunum með almannavarnanefndum, lögreglustjórum og fleirum. Eins og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku er aðkallandi að vinna aðgerðaáætlanir vegna 200 mismunandi hættuástands sem hér getur skapast. Víðir Reynisson, sérfræðingur hjá Almannavörnum, segir að viðbragðsáætlanir þyrfti að vinna hratt; að um forgangsverkefni væri að ræða þar sem hættan er mest.

Aðeins er til ein samhæfð viðbragðsáætlun vegna eldgosa en engin slík áætlun er til vegna jarðskjálfta á Íslandi. Stingur verulega í augun að hvorki hættumat né viðbragðsáætlun vegna eldgoss í Vestmannaeyjum er til staðar, en stórtjón varð þar árið 1973, eins og kunnugt er.

Í ritinu, sem er mikið vöxtum, segir meðal annars að útbúa þurfi hópslysaáætlanir í flestum umdæmum bæði á landi og sjó. Er þar vikið sérstaklega að sífellt tíðari komum skemmtiferðaskipa til landsins.

Á móti kemur að viðbúnaður og viðbragð þegar snjóflóðahætta verður í þéttbýli er í „tiltölulega góðum farvegi“. Þar sem áhættan hefur verið skilgreind hafa verið gerðar rýmingaráætlanir fyrir 16 þéttbýlisstaði. Eins eru til samhæfðar viðbragðsáætlanir fyrir flugvelli landsins; þær eru uppfærðar og æfðar reglulega.

Þá er mikilvægt að styrkja verulega viðbúnað og viðbrögð vegna stórfelldra bilana og truflana á helstu innviðum landsins eins og veitum, fjarskiptum, samgöngum og öryggismálum, svo fátt sé nefnt. Eitt eru allir sammála um sem komu að vinnslu skýrslunnar og það er að Almannavarnir hér á landi búa yfir miklum mannauði og undirstoðir frekari vinnu eru sterkar.

svavar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×